29
Gnúpur GK-11 seldur
admin posted on
Gnúpur GK-11 sigldi um hádegisbilið í dag 20 desember áleiðis til Hafnarfjarðar þar sem hann fer í laufléttan slipp. Hann hefur verið seldur til Rússlands og stefnt er að því að hann verði afhentur nýjum eigendum í Kirkenes í Noregi snemma á nýju ári.Skipið hefur verið í rekstri Þorbjarnar hf í um 26 ár, en það kom fyrst til hafnar í Grindavík í lok árs 1994. Áður hét skipið Guðbjörg ÍS-46 og var þá gert út sem ísfisktogari. Skömmu eftir komuna til Grindavíkur var Gnúpnum breytt í frystitogara og gerður út sem slíkur með góðum árangri.
Á þeim árum sem Gnúpur var í rekstri Þorbjarnar hefur afli hans verið 162.513 tonn í alls 387 löndunum.

Posted in Uncategorized